Róm og Gríska eyjahafið 1. – 14. október.
Flogið til Rómar með Icelandair með viðkomu í Amsterdam. Gistum í þrjár nætur í Róm og förum síðan í 10 nátta siglingu með NCL Getaway þar sem komið er við í Dubrovnik í Króatíu, Kotor í Svartfjallalandi, Korfu, Santorini og Mykonos í Grikklandi og loks Napolí og Liveorno á Ítalíu áður en við komum til Civitavecchia, hafnarborgar Rómar. Þar förum við frá borði og beinustu leið út á flugvöll og fljúgum heim um Amsterdam.
Glæsiskipið Norwegian Getaway
Norwegian Getaway er 145.655 brúttótonn, 326 m að lengd og tæplega 52 m breitt. Farþegar eru 3.963 og 1.646 eru í áhöfn þess. Skipið var byggt árið 2014 og fór í góða yfirhalningu árið 2019. Skipið er afar glæsilega innréttað og þar fer ákaflega vel um farþega.
Verð á mann, miðað við tvo í svalaklefa er 550.000 og 480.000 í innklefa
Einn í svalaklefa er 720.000 og í innklefa 600.000. Í stúdíói 590.000.
INNIFALIÐ: | Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, tíu nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé. Auk þessa velur hver klefi tvo af fjórum mismunandi „pökkum“. Drykkjarpakki: Allir gosdrykkir, áfengir og óáfengir drykkir að 15$ innifalið. Matarpakkinn: þrisvar sinnum út að borða á sérstöku veitingastöðunum. WiFi: 250 mínútur á þráðlausa netinu um borð. Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa hvern dag til að nota í skoðunarferðir. Ath. Þessir tveir pakkar af fjórum eru innifaldur í verði og það þarf að velja drykkjarpakkann til að allir drykkir séu innifaldir. Þetta gildir aðeins fyrir 2 farþega í hverjum klefa. Ef þriðji farþegi bætist í klefann þá eru þessir pakkar ekki í boði fyrir þann farþega. |
EKKI INNIFALIÐ: | Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær. |
Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.
1. október. Keflavík – Róm
Flogið með Icelandair um Amsterdam til Rómar. Ekið sem leið liggur upp á hótelið þar sem við gistum í þrjár nætur.
2. og 3. október. Róm
Notum þessa tvo daga til að skoða Róm, enda margt og mikið að sjá í þeirri merku borg. Annan daginn fer fararstjóri í sex tíma gönguferð um Róm með þá sem það vilja.
4. október. Siglingin hefst
Brottför frá hóteli um kl.10:30 og ekið til Civitavecchia. Getaway leggur úr höfn klukkan 17:00.
5. október. Á siglingu
Á siglingu allan daginn og nóg að gera um borð, skoða skipið, liggja í sólbaði eða bara gera eitthvað annað skemmtilegt.
6. október. Dubrovnik
Komið til Dubrovnik í Króatíu kl 08:00 og leggjum í hann á ný kl 18:00. Gamli bærinn einstaklega fallegur og gaman að skoða. Mikið af Games of Thrones var tekið upp hér.
7. október. Kotor
Komið til Kotor í Svartfjallalandi kl 07:00 og förum þaðan kl 16:00. Fallegur bær sem gaman er að ganga um og skoða. Gríðarlega fallegt að sigla inn til bæjarnins.
8. október. Korfú
Þá erum við komin til Grikklands. Leggjum að bryggju kl 07:00 og farið aftur kl 15:00. Góður labbitúr upp að gamla kastalanum og síðan hefur fólk tíma til að skoða sig um í miðbænum.
9. október. Santorini
Komið til eyjarinnar kl 13:00 og gaman að vera uppi á dekki þegar siglt er að henni. Farið á ný kl 22:00.
10. október. Mykonos
Komum til Mykonos kl 07:00 og farið á ný kl 19:00. Skemmtilegur lítill bær með þröngum götum og mjög gaman að ganga þar um.
11. október. Á siglingu
Erum á siglingu í allan dag og um að gera að njóta þess sem í boði er um borð.
12. október. Napolí
Komum hér kl 07:00 og förum á ný kl 17:00. Fyrir þá sem ekki hafa komið til Pompeii þá er það mjög áhugavert. Ítalir segja að Margareta pizzan hafi fyrst verð gerð hér og um að gera að smakka.
13. október. Livorno
Komið kl. 09:00 og farið þaðan kl. 20:00. Flórens, Pisa (skakki turninn) og Cinque Terra eru meðal þess sem áhugavert er að skoða hér.
14. október. Siglingu lýkur
Komum til Civitavecchia kl 06:00 förum út á flugvöll og fljúgum heim í gegn um Amsterdam.
Fararstjóri:
Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.
Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.
Ánægðir viðskiptavinir Norrænu Ferðaskrifstofunnar er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.